Engiferkökur
250 g hveiti
250 g púðursykur
125 g smjör
1 egg
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk natron
1 tsk engifer
1/2 tsk negull
1/2 tsk kanill
Blandið vel saman öllum hráefnum.
Deigið er hnoðað í litlar kúlur og þær settar á bökunarpappír.
Bakað við 180-200°C í 8 mín.
Passið að þessar bakist ekki of lengi því þær geta orðið harðar. Þær eru mjög linar þegar þær eru nýkomnar úr ofninum. Leyfið kökunum að kólna á bökunarplötunni í 2-3 mínútur áður en þær eru settar yfir á kæligrind.
-
Gréta Friðriksdóttir 10.11.2018þessar hef ég bakað í um 50 ár og eru vinsælar
-
Emilia Birna 5.12.2020Namm mitt uppáhald!
Athugasemdir