Haframjöls- og bjórskonsur

Haframjöls- og bjórskonsur

350 g hveiti

100 g fínt haframjöl

1 msk sykur

2 tsk lyftiduft

1 tsk salt

80 g kalt smjör

lítið búnt graslaukur, klippt (20 g)

100 g rifinn ostur

2 egg

2 tsk djon sinnep

200 ml bjór

Stillið ofninn í 200°c.

Byrjið á að vinna saman þurrefnin og kalt smjörið. Einfaldast er að skera smjörið í litla bita og mylja síðan saman við þurrefnin.

Klippið graslaukinn og setjið rifinn ostinn út í þurrefnaskálina og hrærið saman.

í annarri skál á að slá eggin sundur með gaffli og blanda sinnepi og bjór saman við áður en blöndunni er hellt út í þurrefnin.

Hnoðið deigið í stutta stund, rétt þar til deigið er kekkjallaust. Bætið við hveiti eftir þörfum.

Fletjið deigið út á hveitistráðu borði í 4 cm þykkt og stingið út með hringlara formi. Einnig má skpta deiginu í 9 hluta og mynda einskonar buff úr hverjum deighluta.

Leggið deighlutana á bökunarpappísklædda plötu og penslið með örlítilli mjólk.

Bakið við 200°c í 25-30 mínútur eða þar til skonsurnar hafa tekið fallegan lit.