Kanilsnúningar
Einföld uppskrift og heimilið ilmar af yndælum bökuðum kanilsykri. Frábærir bornir fram volgir með stóru glasi af mjólk.
1 pakki smjördeig
50 g brætt smjör
2 tsk kanill
4 msk sykur
2 msk púðursykur
50 g flórsykur og vatn fyrir glassúr
Fletjið deigið út með kökukefli í 25 x 30 cm ferning.
Penslið deigið með þunnu lagi af bræddu smjöri.
Blandið saman sykri og kanil. Stráið kanilsykri yfir.
Brjótið saman deigið svo það verði tvöfalt. Skerið deigið í 1,5 cm renninga. Snúið upp á renningana og leggið á bökunarpappír í air fryer.
Bakið við 160°C í 8-12 mínútur eða þar til smjördeigið hefur tekið gylltan lit.
Blandið þykkan glassúr úr flórsykri og örlitlu vatni. Gott er að setja vatnið út í flórsykurinn í smáum skömmtum til að ná fram hæfilegri þykkt.
Dreifið glassúr yfir stangirnar og berið fram volgar.
-
Alexander Ragnar Ingvarsson 22.12.2022Erla er Queen of Air fryer
Athugasemdir