Klassísk kjúklingabaka
Bökuskelin:
1 Bolli hveiti
2 tsk sykur
1/4 tsk salt
60 g kalt smjörlíki
1 msk grænmetisolía
1 1/2 msk kalt vatn
Allt hnoðað saman og sett í kæli í a.m.k. 30 mínútur
1 msk olía
1 askja sveppir (kastaníusveppir eru góðir)
1/2 lítill laukur, saxaður
1 bolli smátt skorin gulrót
1/3 bolli smátt skorið sellerí
1 1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk salt
1/4 tsk svartur pipar
1/4 bolli hveiti
2 bollar möndlumjólk
2 bollar rifinn kjúklingur (2 bringur)
1/2 bolli frosinn maís
1/2 bolli frosnar ertur (grænar baunir/peas)
1/2 bakki strengjabaunir
2 tsk timjan
1 egg, slegið með 1 msk af vatni til að pensla með
Hitið ofninn í 200°C.
Hitið olíu í djúpri pönnu og steikið sveppi í nokkrar mínútur. Bætið við lauk, gulrót, sellerí og kryddum og steikið aðeins áfram. Þegar grænmetið er farið að mýkjast á að strá hveitinu yfir og bæta síðan möndlumjólkinni út á í smá skömmtum. Leyfið blöndunni að þykkna og bætið síðan maís, ertum, baunabelgjum og timjan út á pönnuna. Látið sjóða við vægan hita í 3-5 mínútur og setjið síðan yfir í ofnfat.
Fletjið úr bökudeigið og setjið yfir ofnfatið. Skerið raufar í deigið til að gufa nái að sleppa út úr bökunni við baksturinn. Penslið með eggjablöndunni og bakið í ofni þar til toppurinn er orðinn gullinbrúnn (tekur um 30 mín).