Kókosbolluterta

Kókosbolluterta
(1)

4 Egg

125 gr. Sykur

100 gr. Síríus suðusúkkulaði

1 tsk. lyftiduft

2 msk. hveiti

Fylling:

1 peli rjómi

4 kókosbollur*

Þeytið saman egg og sykur. Hveiti og lyftiduft sett út í og síðast súkkulaðið.

Bakað í tveimur vel smurðum formum við 200 gráðu hita ( blástursofn 175 gráður ) í u.þ.b. 20 mínútur.

Látið kólna áður en tekið er úr formunum.

Skerið hverja kókosbollu í þrennt. Rjóminn þeyttur og settur ásamt kókosbollunum á milli botnana.

(Tertan þolir vel frystingu).