Konfektdraumur
4 eggjahvítur
200 g flórsykur
2 msk kakó
Kaffikrem:
1 msk skyndi kaffiduft
2 msk sjóðandi vatn
100 g smjör
150 g flórsykur
Leysið kaffið upp í vatninu og látið kólna. Þeyta saman við smjör og flórsykur.
Súkkulaðikrem:
200 g saxað súkkulaði
1 1/2 dl rjómi
Hitið rjómann og hellið yfir súkkulaðið. Látið standa í nokkrar mínútur og hrærið síðan vel saman. Ef þið viljið hafa kremið þykkara er hægt að stinga kreminu í ísskáp í 20-30 mín.
Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvítur í hreinni skál og þeytið þar til þær fara að freyða. Bæta flórsykrinum smátt og smátt við. Þeyta þar til stíft. Sigtið kakóið út í og blandið saman við með sleikju. Teiknið þrjá 22 cm hringi á bökunarpappír og bakið botnana í 40 mín. Setjið 1 botn á kökudisk og setjið helminginn af kaffikreminu á hann og 1/3 af súkkulaðikreminu yfir það, botn nr 2 fer þar ofan á og fær sömu meðhöndlun. Hellið að lokum afganginum af súkkulaðikreminu yfir kökuna og berið fram með þeyttum rjóma.