Pavlova með ferskum ávöxtum

Pavlova  með ferskum ávöxtum

4 eggjahvítur

200 g sykur

1 tsk maíssterkja

Hitið ofninn í 150°C.

Stífþeytið eggjahvíturnar með sykri og bætið maíssterkju varlega saman við með sleikju. Smyrjið blöndunni á bökunarpappír.

Ef á að gera tveggja hæða köku er hægt að gera tvo minni botna í staðinn fyrir einn stóran. Ég reyni að gera botnana hringlaga en þeir sem eru fullkomnunarsinnar geta dregið hring á pappírinn fyrst með því að nota blýant og disk.

Baka í 150°C í 50 mín neðst í ofninum. Slökkva á ofninum og láta hann þorna í ofninum yfir nótt.

1 peli rjómi ofan á

1 bakki jarðarber skorin

bláber

vínber skorin í tvennt

ferskjur úr dós skornar í bita

Ef gerðir eru tveir botnar er fyrri botninn smurður með helmingnum af þeytta rjómanum og helmingnum af ávöxtunum er dreift yfir. Seinni botninn er settur ofan á og rjóma og ávöxtum dreift yfir. Best er að geyma kökuna í kæli í nokkrar klst til að rjóminn nái að mýkja aðeins upp marengsinn.