Klístraðir Kóla kjúklingavængir í Air fryer
Þessi uppskrift er svolítið sérstök en vel þess virði að prófa. Vængirnir eru steiktir í air fryer og á meðan er sósan útbúin í potti.
1 bakki kjúklingavængir (um 10 stk)
klípa salt og pipar
Sósa:
120 ml coca cola, ekki sykurlaust!
4 msk púðursykur
1 msk tómatpúrra
1 lauf hvítlaukur, hakkaður
klípa chlilflögur
1 tsk paprika
1-2 vorlaukar til að toppa réttinn með
Kljúfið kjúklingavængina í þrennt og hendið vængendanum. Kryddið kjúklingavængina salti og pipar.
Forhitið air fryer í 200°c og steikið kjúklingavængina í 10 mínútur. Snúið vængjunum og steikið áfram í aðrar 10 mínútur.
Setjið innihaldsefni sósunnar í pott og hitið að suðu. Leyfið sósunni að krauma við vægan hita í nokkrar mínútur til að hún nái að þykkna.
Setjið steikta vængina í hreina skál ásamt sósunni og hrærið vel í með sleikju. Sneiðið vorlaukinn þunnt og stráið yfir vængina áður en borið er fram.