Grautarlummur

Grautarlummur
(3)

400 g hafra- eða grjónagrautur

2 egg

100 g hveiti

1 1/2 tsk lyftiduft

3 msk sykur

1-2 dl mjólk

1-2 tsk vanilludropar

smjör eða smjörlíki til steikingar

Allt þeytt saman með rafmagnsþeytara þar til deigið er vel blandað saman.

Steikja á vel smurðri pönnu við meðal lágan hita. (Lægsti logi á gaseldavél) Ég pensla pönnuna með þunnu lagi af smjöri á milli hverrar lummu.

Snúa lummunum við þegar loftbólur myndast á yfirborðinu.

Algengt er að strá smávegis sykri á heitar lummurnar en einnig má bera þær fram með sírópi eða jafnvel sultu og rjóma.

Athugasemdir

  • Björn Sigurðsson 25.2.2023
    Ljómandi gott
  • hjansi 15.5.2024
    ok
  • Einar Breki 16.11.2024
    Voðalega gott!!
  • Einar Breki 16.11.2024
    MJÖG gott !!
  • Birkir 9.6.2025
    MJÖG gott !!
  • Einar Ágúst 19.11.2025
    þessar slá alltaf í gegn á mínu heimili
  • Súla 28.4.2026
    Súper góðar 😃