Kanarí kartöflur

Kanarí kartöflur

Þessar eru kannski ekki flóknar en þetta er meðlætið sem ég panta alltaf með öllum réttum þegar ég er á Tenerife.

Litlar kartöflur

2-3 msk gróft salt

alioli

klipptur graslaukur

Sjóðið kartöflurnar í vel söltu vatni. Þegar kartöflurnar eru soðnar má hella nánast öllu vatninu af en skilja eftir örlítið af vatni í botinum á pottinum. Látið vatnið gufa upp þannig að myndist salthúð utan á kartöflunum.

Klippið graslauk yfir soðnar saltkartöflurnar og berið fram með alioli.