Smjördeig

Smjördeig

1 Bolli hveiti (120 g)

2 tsk sykur

1/4 tsk salt

60 g kalt smjör eða smjörlíki

1 msk grænmetisolía

1 1/2 msk kalt vatn

Blanda saman þurrefnum og mylja smjörið saman við.

Setjið kalt vatnið og olíuna saman við deigið og hnoðið létt saman.

Kælið deigið í a.m.k. 30 mínútur áður en það er flatt út.

Gott er að fletja deigið út á milli tveggja arka af bökunarpappír.

Athugasemdir

  • 9/4/2023 2:51:17 PM

    Sigga

    Hvenær Koma olía og vatn í þurrefnin

  • 9/5/2023 8:55:32 AM

    Erla Steinunn

    Sigga, takk fyrir ábendinguna.  Er búin að laga uppskriftina :)  Vatnið og olían er sett útí þega búið er að mylja smjörið saman við þurrefnin.