Súkkulaðikaka með rjóma og ávöxtum

Súkkulaðikaka með rjóma og ávöxtum

115 g smjör

150 g sykur

50 g púðursykur

80 g hveiti

3 egg

230 g suðusúkkulaði

1 tsk vanilludropar

2 msk kakó

1/4 tsk salt

Þeyttur rjómi og ferskir ávextir tilað skreyta með.

Hitið saman súkkulaði og smjör yfir vatnsbaði. Leyfið blöndunni að kólna aðeins.

Hrærið saman sykur, púðursykur og súkkulaðiblöndunni. Bætið vanilludropum og eggjunum saman við einu í einu.

Blandið að lokum þurrefnum saman við með sleif.

Setjið í bökunarpappírsklætt form sem hefur verið smurt með örlitlu smjöri.

Bakið við 175°c í 30-35 mínútur.

Leyfið kökunni að kólna og skreytið síðan með .þeyttum rjóma og ferskum ávöxtum.